Veðurspá fyrir janúarmánuð

Félagarnir í Veðurklúbbnum á Dalbæ voru ánægðir með desemberspána, þar sem hún nær alveg gekk eftir. Í janúar telja þeir að verði áframhaldandi umhleypingar ýmist norðan eða suðlægar áttir, en ekkert fannfergi eða frosthörkur. Nýtt tungl kviknar 8. janúar í S.S.A.

Verði öllu fjarri fár
fólki á þessu landi.
Gefi okkur gott nýtt ár
Guð minn alsvaldandi.