Veðurspá febrúarmánaðar frá Veðurklúbbnum á Dalbæ

Veðurspá febrúarmánaðar frá Veðurklúbbnum á Dalbæ

Þriðjudaginn 6. febrúar komu félagar í Veðurklúbbnum á Dalbæ saman til fundar í því skyni að huga að veðurhorfum í febrúarmánuði. Af tæknilegum ástæðum reyndist ekki unnt að birta spá fyrir janúar mánuð, sem var engu að síður gerð og reyndust félagar hafa þar verið sannspáir eins og oft áður.

Nýtt tungl kviknar 15. þessa mánaðar í vestri kl. 21:05 og er það Góutungl. Gert er ráð fyrir að veðurfar í febrúar verði áþekkt og veður var í janúar. Risjótt tíðarfar með umhleypingum og breytilegu hitastigi.  Þó að víða á landinu hafi blásið hressilega þá höfum við hér á svæðinu sloppið við óveður af nokkru tagi.  

 

Veðurvísa mánaðarins:

Febrúar á fannir

Þá læðist geislinn lágt.

Í mars þá blæs oft biturt,

en birtir smátt og smátt.

 

Með góðri kveðju,

Veðurklúbburinn á Dalbæ