Veðurklúbburinn á Dalbæ - Veðurspá fyrir nóvember


Fullt tungl kviknar laugardaginn 6. nóvember í aust-norðaustri og er það laugardagstungl, sem veit á gott.
Umhleypingar verða fram eftir mánuðinum, mest í krapaslyddu eða regni.
Seinni hluti mánaðarins verður þurrari og betri. Vindáttir verða norðvestan og suðaustan, en ekki kvassar.

Einn draumur.:
Einn dreymdi stúlkur sem voru blautar af regni og styrkti það ofangreinda veðurspá.

Skammdegiskveðjur,

Veðurklúbburinn á Dalbæ.