Veðurklúbburinn á Dalbæ með veðurspá októbermánaðar

Tungl kviknaði i S.S.A. 27. sept. kl. 11:09 og var þriðjudagstungl. Fundarmenn álíta að fyrri partur mánaðarins verði umhleypingasamur, en seinni hluti hans verði fremur mildur. Sunnan og austanáttir munu vera ríkjandi. Vetrartungl kviknar 26. október í vestri kl. 19:56. Draumar klúbbfélaganna voru mjög misvísandi hvað veðurfar áhrærir en engu að síður var samstaða ágæt um um spána.

Veðurklúbburinn á Dalbæ.