Veðurklúbburinn á Dalbæ með veðurspá marsmánaðar

Þriðjudaginn 1. mars 2016 komu félagar í Veðurklúbbnum á Dalbæ saman til fundar. Fundarmenn voru ágætlega sáttir við hvernig síðasta spá gekk eftir.
Nýtt tungl kviknar mánudaginn 9. mars í norðvestri kl. 01:54. Næsta dag verður tungl næst jörðu og því stórstreymt. Ekki þarf að hafa sérstaka aðgát vegna þess, þar sem vindur verður lítill á þeim tíma.
Veður í mars mánuði verður umhleypingasamt. Búast má við hvelli fyrrihluta mánaðarins, en hann stendur þó stutt yfir. Áttir verða breytilegar og hitastig sveiflukennt.

Veðurvísa mánaðarins:

Febrúar á fannir,
þá læðist geislinn lágt
Í mars blæs oft biturt,
en birtir smátt og smátt

Með góðri kveðju,

Veðurklúbburinn á Dalbæ