Veðurklúbburinn á Dalbæ með veðurspá febrúarmánaðar

Veðurklúbburinn á Dalbæ hefur nú sent frá sér veðurspá febrúarmánaðar en fundað var í klúbbnum nú í lok janúar. Ekki voru klúbbfélagar alveg sáttir við janúarspána, en áægðir með að mánuðurinn var mildari en þeir spáðu. 

Fullt tungl var 30. janúar og nýtt tungl kviknar 14. febrúar í n.n. austri á sunnudegi sem er gott. Febrúarmánuður verður mildur, en umhleypingasamur. Smá hret af og til sem verða þó meinlaus. Dálítil svellalög. Mánuðurinn verður fremur vindasamur af suðlægum áttum.

Veðurklúbburinn á Dalbæ