Veðurklúbburinn á Dalbæ með marsspá sína

Veðurklúbburinn á Dalbæ hefur nú gefið út veðurspá sína fyrir marsmánuð. Klúbbfélagar voru mjög sáttir við spá síðasta mánaðar. Tungl kviknar 4. mars í VNV kl. 20:46 á föstudegi og er góutungl. Áfram verða suðvestlægar áttir, risjótt veður og smá éljagangur annað slagið og sviftingar í veðri.

Fullt tungl verður 19. mars og jafndægur á vori þann 20. sama mánaðar.

Með góukveðju,

Veðurklúbburinn á Dalbæ