Veður og færð í dag

Samkvæmt upplýsingum á vef Vegagerðarinnar eru allar leiðir á Norðurlandi greiðfærar. Veðrið er líka með besta móti, suðlæg átt, 5-13 m/s. Rigning eða súld með köflum og hiti 3 til 8 stig á Norðurlandi vestra en sunnan og suðvestan 5-10 m/s, skýjað en úrkomulítið á Norðurlandi eystra. Hiti þar 3 til 8 stig, en nálægt frostmarki á morgun.