Vaxtarsamningur Eyjafjarðar - úthlutun

Vaxtarsamningur Eyjafjarðar - úthlutun

Óskað er eftir umsóknum um verkefnastuðning frá Vaxtarsamningi Eyjafjarðar. Allar atvinnugreinar hafa jafna möguleika á stuðningi, uppfylli umsóknir skilyrði um helstu atriði sem lögð eru til grundallar við mat umsókna. Skilyrði er að í verkefni sé um að ræða samstarf tveggja eða fleiri aðila og skal minnst helmingur þátttakenda vera fyrirtæki. Lögð verður áhersla á verkefni sem efla tengls háskóla og atvinnulífs, sem og verkefni sem miða að markaðssetningu og útrás. Við val á verkefnum verður við það miðað að þau efli nýsköpun á Eyjafjarðarsvæðinu og stuðli að vexti svæðisins.

Verkefnin sem hljóta munu samþykki hjá Vaxtarsamningi Eyjafjarðar fá allt að 50% heildarkostanaðar við þau, gegn mótframlagi annarra þátttakenda.

Umsóknarfrestur er til 29. janúar. Umsóknareyðublöð eru á www.afe.is. Nánari upplýsingar veitir Hjalti Páll Þórarinsson, verkefnisstjóri Vaxtarsamnings Eyjafjarðar, í síma 460 5700 eða á hjalti@afe.is. Umsóknir skulu berast til Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar, Skipagötu 9, 600 Akureyri eða á netfangið hjalti@afe.is

Sprotasetur
Einnig er nú hægt að sækja um aðstöðu í Sprotasetri, en umsóknarfrestur um það er til 29. janúar 2009. Starfsemi Sprotaseturs Vaxey er á vandaðri skrifstofuhæð í miðbæ Akureyrar. Einstaklingar sem fá inni á Sprotasetri Vaxey fá bæði aðstöðu og þjónustu frá AFE, auk þess sem þeim er veitt aðstoð við aðra fjármögnun. Í boði eru fullbúnar skrifstofur með allri þjónustu, s.s. ritaraþjónustu, þrifum, símsvörun, interneti, fundarherbergi, ljósritun, kaffistofu og fl.

Hægt er að sækja um þátttöku í 6 mánuði, með möguleika á framlengingu að þeim tíma liðnum. Við val á verkefnum verður horft til annars verkefnavals Vaxtarsamningsins. Lögð verður áhersla á verkefni sem efla tengsl háskóla og atvinnulífs, sem og verkefni sem miða að markaðssetningu og útrás. Ekki er skilyrði um samstarf fleiri aðila.