Vatnstankur við Upsa - útboð

Vatnstankur við Upsa - útboð

Vatnstankur við Upsa
Sveitarfélagið Dalvíkurbyggð , óskar eftir tilboðum í verkið „ Vatnstankur við Upsa“.

Lauslegt yfirlit.
Verkið felur í sér jarðvinnu, gröft og fyllingar og uppsteypu á vatnstank við hlið núverandi vatnstank við Upsa á Dalvík auk léttrar byggingar á steyptum grunni fyrir tengingar og loka.

Helstu magntölur:
Grunnflötur Vatnstanks: 244m2
Gröftur: 1500 m3
Steypa: 230 m3

Útboðs og verklýsing ásamt teikningum verða send til áhugasamra verktaka, 6.ágúst.
Áhugasamir verktakar geta óskað eftir útboðsgögnum með því að senda tölvupóst á faglausn@faglausn.is

Vinsamlega sendið inn nafn, símanúmer og tölvupóstfang þess sem kemur til með að vinna að tilboðinu.
Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.