Varðandi afgreiðslu umhverfisráðs á kynningu deiliskipulags Fólkvangsins

Varðandi afgreiðslu umhverfisráðs á kynningu deiliskipulags Fólkvangsins

Skipulagsnefnd þakkar fyrir viðbrögð við kynningu á drögum að deiliskipulagi fólkvangsins í Böggvisstaðafjalli.

Margar góðar og gagnlegar ábendingar bárust sem hafðar verða til hliðsjónar við áframhaldandi vinnslu skipulagstillögu. Fljótlega verður skipulagstillaga auglýst og verður þá gefinn frekari kostur á athugasemdum sem svarað verður formlega.