Varanlegt slitlag komið á Svarfaðardalshringinn!

Varanlegt slitlag komið á Svarfaðardalshringinn!

Gengið hefur verið frá veginum hringinn í Svarfaðardal með varanlegu slitlagi, en lokahönd var lögð á verkið nú í júlí. Gamalt baráttumál er þar með í höfn. Brýrnar yfir Skíðadalsá og Svarfaðardalsá voru endurnýjaðar um aldamót en áformaðar vegaframkvæmdir létu bíða eftir sér. Skriður var þó kominn á málið og allt klárt þegar hrunið varð. Þar með varð ekki af framkvæmdum að sinni. Síðasta sumar fóru síðan framkvæmdir á fullt og var eins og áður segir lokið í sumar. Mikið framfaraskref!