Valur ráðinn í starf umhverfisstjóra

Þann 30. október síðastliðinn rann út umsóknarfrestur um starf umhverfisstjóra. Starfið er nýtt hjá Dalvíkurbyggð og heyrir undir umhverfis- og tæknisvið. Alls sóttu 25 aðilar um starfið.

Ákveðið hefur verið að ráða Val Þór Hilmarsson í starfið frá næstkomandi áramótum. Það var Capacent sem hafði yfirumsjón með ráðningunni og taldi Val hæfastan úr hópi umsækjenda. Valur er 54 ára og menntaður garðyrkjufræðingur af umhverfissviði Garðyrkjuskóla ríkisins.

Við bjóðum Val velkomin til starfa.