Útsvarsliðið áfram í næstu umferð

Síðastliðinn föstudag fór fram viðureign Dalvíkurbyggðar og Fjallabyggðar í 16 liða úrslitum Útsvarsins. Okkar fólk stóð sig með miklum sóma og sigraði Fjallabyggð með 59 stigum gegn 51. Síðasti þáttur 16 liða úrslitanna verður næstkomandi föstudag en þá verður jafnframt dregið í 8 liða úrslit. Þá kemur í ljós hvaða andstæðinga Dalvíkurbyggð fær.