Útskrift Brautargengis á Akureyri

Útskrift Brautargengis á Akureyri

Þann 15. maí sl. luku á Akureyri 19 konur námskeiðinu Brautargengi og var útskriftin haldin á veitingastaðnum Friðriki V.  Þessar konur hafa undanfarnar 15 vikur unnið að viðskiptahugmyndum sínum en þess ber að geta að um þriðjungur þeirra kominn af stað með rekstur nú þegar. Konurnar 19 sóttu námskeiðið frá Skagafirði, Dalvíkurbyggð, Akureyri og Norðurþingi. Þrjár konur frá Dalvíkurbyggð útskrifuðust, Álfheiður Maren Pálsdóttir, Kristín Aðalheiður Símonardóttir og Friðrika Jónmundsdóttir. Á myndinni að neðan með þeim útskriftarnemum er Selma Dögg Sigurjónsdóttir sem hefur umsjón með Brautargengi.

Námskeiðið sem haldið er á vegum Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands með og var að þessu sinni einnig kennt á Hellu og á Ísafirði.  Þessir hópar hafa setið saman tvisvar á námskeiðstímanum, í Reykholti og í Nesbúð, og verið þannig saman um ákveðinn hluta kennslu og kynninga og haft tækifæri til að mynda gott tengslanet sín á milli. 

Í haust fagnar Impra 10 ára afmæli Brautargengis en í heild hafa vel á áttunda hundrað konur útskrifast frá því Brautargengisnámskeiðin hófust í Reykjavík.  Á Akureyri lauk tíunda Brautargengisnámskeiðinu með útskrift 19 kvenna 15. maí sl. en þessa dagana er einnig verið að útskrifa konur á Ísafirði, Hellu og í Reykjavík.

Sigrún Björk Jakobsdóttir bæjarstjóri Akureyrarbæjar veitti tvær viðurkenningar fyrir gott gengi á námskeiðinu og var það Sveinbjörg Hallgrímsdóttir sem fékk hvatningarviðurkenningu Brautargengis á Akureyri fékk fyrir viðskiptaáætlun sína um Svartfugl - Skínandi fagur, sem miðast að því að gefa verkum listamannsins Sveinbjargar Hallgrímsdóttur framhaldslíf í formi gjafakorta og ýmissa vara.    

Viðurkenningu fyrir bestu viðskiptaáætlunina fékk Sigurbjörg Helga Pétursdóttir fyrir verkefnið Stekkur bókhaldsþjónusta.

Brautargengi er námskeið í gerð viðskiptaáætlana.  Það er opið fyrir allar konur, hvort sem þær eru með hugmyndir sem þær vilja þróa og skoða nánar eða konur sem þegar eru í rekstri.