Útivera

Eins og þið hafið eflaust tekið eftir þá eru börnin búin að vera ansi blaut og skítug undanfarið eftir útiveru hjá okkur.
Garðurinn er mjög blautur og mikil drulla er þar af leiðandi í honum líka. Þess vegna er mjög nauðsynlegt að allir séu með POLLAFÖT og AUKA FÖT í tösku. Kuldaskórnir mega fara heim núna og stígvélin koma í staðin :)
Til þess að eiga möguleika á því að fara í útikennslu á morgnana og svo aftur út eftir hádegi er mikilvægt að þessir hlutir séu í lagi.