Úthlutunarhátíð Uppbyggingarsjóðs Norðurlands eystra

Úthlutunarhátíð Uppbyggingarsjóðs Norðurlands eystra

Nú ber að fagna hugmyndaaugði og framtakssemi!
Í dag kl. 12 fer fram úthlutunarhátíð Uppbyggingarsjóðs Norðurlands eystra þar sem upplýst verður um þau flottu verkefni sem hlutu styrk að þessu sinni. Til úthlutunar voru 75 m.kr. og í heildina fengu 80 verkefni styrk sem nýtist til atvinnuuppbyggingar, nýsköpunar og menningarstarfa.

Hátíðin er haldin rafrænt á Facebook. Við hvetjum alla sem tök hafa til að taka hádegið frá og fylgjast með hvaða og hvernig verkefni hlutu styrk í ár.

Gott er að smella á þennan hlekk rétt fyrir kl.12:00: https://fb.me/e/1i1J6gOGe