Úthlutun mótvægisaðgerða ríkisstjórnarinnar til ferðaþjónustu

Úthlutun mótvægisaðgerða ríkisstjórnarinnar til ferðaþjónustu

Í dag var birtur listi yfir úthlutanir úr mótvægisaðgerðum ríkisstjórnarinnar til ferðaþjónustu. Fjórir aðilar í Dalvikurbyggð fengu styrk að verðmæti níu og hálf milljón króna. Hæsta styrk fékk Dalvíkurbyggð fjórar milljónir króna til Náttúrfræðaseturs að Húsabakka í Svarfaðardal. Jökull Bergmann fékk tvær og hálfa milljón króna til Bergmanna, fagmanna í fjallaleiðsögn. Ektafiskur fékk tvær milljónir króna til Þjóðlegrar gjafavöru, saltfiskur. Sportferðir fékk eina milljón til Sjósports.

Frétt af vef Byggðastofnunar, byggdastofnun.is
Gengið hefur verið frá styrkveitingum vegna mótvægisaðgerða ríkistjórnarinnar á sviði ferðaþjónustu 2008-2009.
Styrkirnir voru auglýstir í janúar sl. og voru 160 milljónir króna til úthlutunar. Umsóknarfrestur rann út 5. febrúar og bárust alls 303 umsóknir. Alls hlutu 77 verkefni styrk.
Hæstu styrkina hlutu Sögugarður í Grundarfirði og Félag áhugamanna um víkingaverkefni á slóðum Gísla Súrssonar á Þingeyri, sex milljónir hvort verkefni.
Við mat á umsóknum var m.a. tekið tillit til hlutfalls starfa í veiðum og vinnslu á viðkomandi svæði, fjölda tonna sem skerðast, gæða og mögulegs árangurs verkefna auk fjölda starfa sem þeim er ætlað að skapa.
Iðnaðarráðuneytið hefur falið Ferðamálastofu að gera samninga við styrkþega um framvindu og árangursmat verkefnanna en styrkirnir verða greiddir út í tvennu lagi.
Listi yfir verkefni sem fengu styrk