Útboð - skólaakstur nemenda fyrir grunnskóla Dalvíkurbyggðar 2017-2020

Útboð - skólaakstur nemenda fyrir grunnskóla Dalvíkurbyggðar 2017-2020

Dalvíkurbyggð óskar eftir tilboðum í skólaakstur með nemendur Dalvíkurskóla og Árskógarskóla 2017 – 2020. Um er að ræða þrjár akstursleiðir og er áætlaður akstur á dag um 130 km alls.

Nánari upplýsingar í útboðsgögnum sem afhent verða í Ráðhúsi Dalvíkurbyggðar frá og með þriðjudeginum 25. apríl gegn 3.500 króna gjaldi. 

Tilboðum skal skilað í Ráðhús Dalvíkurbyggðar eigi síðar en miðvikudaginn 24. maí, kl. 10.45 og verða þau þá opnuð sama dag kl. 11:00 í fundarsal á 3. hæð í Ráðhúsinu að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.

 Fræðslu- og menningarsvið Dalvíkurbyggðar

Ráðhúsinu, 620 Dalvík.