Útboð – Skólaakstur nemenda fyrir Árskógarskóla og Dalvíkurskóla 2022 - 2025

Útboð – Skólaakstur nemenda fyrir Árskógarskóla og Dalvíkurskóla 2022 - 2025

Dalvíkurbyggð óskar eftir tilboðum í skólaakstur með nemendur Árskógarskóla og Dalvíkurskóla 2022 – 2025. Um er að ræða fjórar akstursleiðir og er áætlaður akstur á dag um 217 km alls að meðaltali.

Nánari upplýsingar í útboðsgögnum sem afhent verða í Ráðhúsi Dalvíkurbyggðar frá og með mánudeginum 28. mars 2022

Tilboðum skal skilað í Ráðhús Dalvíkurbyggðar eigi síðar en fimmtudag 28. apríl, kl. 10.45 og verða þau þá opnuð sama dag kl. 11:00 í fundarsal á 3. hæð í Ráðhúsinu að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.

Fræðslu- og menningarsvið Dalvíkurbyggðar
Ráðhúsinu
620 Dalvík