ÚTBOÐ - Ræsting á leikskólum

Fræðslu- og menningarsvið Dalvíkurbyggðar

ÚTBOÐ

1.  Ræsting á leikskólum

Fræðslu- og menningarsvið Dalvíkurbyggðar óskar eftir tilboðum í reglulega ræstingu og hreingerningu á leikskólunum Krílakoti sem er á Dalvík og Leikskólanum Leikbæ sem er á Árskógsströnd.

Um er að ræða um 584 fermetra ræstiflöt.

Útboðsgögn verða seld á bæjarskrifstofu Dalvíkurbyggðar, Ráðhúsinu á Dalvík á kr 5.000,- frá og með mánudeginum 14. janúar til þriðjudagsins 15. janúar 2008. Vettvangsskoðun verður þann 18. janúar og tilkynna skal þátttöku í hana til þjónustuvers Dalvíkurbyggðar í síma 460-4900.

Tilboðum skal skila á bæjarskrifstofu Dalvíkurbyggðar, Ráðhúsinu á Dalvík, eigi síðar en mánudaginn 28. janúar 2008 kl 10:00 og verða þau þá opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.

Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs