Útboð – hádegisverður fyrir Dalvíkurskóla og Árskógarskóla 2017 - 2020

Útboð – hádegisverður fyrir Dalvíkurskóla og Árskógarskóla 2017 - 2020

Dalvíkurbyggð óskar eftir tilboðum í skólamáltíðir fyrir nemendur og starfsfólk í skólum sveitarfélagsins frá og með skólaárinu 2017-2020. Um er að ræða grunnskólann á Dalvík samtals um 270 nemendur/starfsmenn og leik- og grunnskólann í Árskógi samtals um 46 nemendur/starfsmenn og leikskólann.

Nánari upplýsingar í útboðsgögnum sem afhent verða í Ráðhúsi Dalvíkurbyggðar frá og með þriðjudeginum 25. apríl gegn 3.500 króna gjaldi. Tilboðum skal skilað í Ráðhús Dalvíkurbyggðar eigi síðar en miðvikudaginn 24. maí, kl. 12.45 og verða þau þá opnuð sama dag kl. 13:00 í fundarsal á 3. hæð í Ráðhúsinu að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.

Fræðslu- og menningarsvið Dalvíkurbyggðar
Ráðhúsinu, 620 Dalvík.