Útboð - endurbætur á Sundlaug Dalvíkur

ÚTBOÐ

Dalvíkurbyggð óskar eftir tilboðum í endurbætur á Sundlaug Dalvíkur.
Verktími er frá ágúst 2015 til október 2015.

Helstu magntölur eru:

  • Dúklögn 500 m2
  • Flísalögn á kanta 75 m
  • Innstreymi 16 stk
  • Niðurföll í botni 3 stk
  • Yfirfallsstúta 12 stk

Ósk um afhendingu rafrænna útboðsgagna skal senda á netfangið avh@avh.is  og verða þau afhent frá og með 23. júní n.k.
Tilboð skulu berast á ofangreint netfang, eða í lokuðu umslagi í þjónustuver skrifstofu Dalvíkurbyggðar Ráðhúsinu Dalvík, fyrir kl. 11:00 þriðjudaginn 7. júlí 2015.


Tilboð verða opnuð sama dag kl. 14:00 í fundarsal Ráðhúss Dalvíkur 3. hæð, í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska.