Úrslit sveitarstjórnarkosninga 2018

Úrslit sveitarstjórnarkosninga 2018

Síðastliðinn laugardag fóru fram sveitarstjórnarkosningar um allt land. Á kjörskrá í Dalvíkurbyggð voru 1362. Alls kusu 1088 sem er 79,88% kjörsókn. Til samanburðar má geta að í síðustu sveitarstjórnarkosningum, 2014, var kjörsókn 84,39%.

Niðurstöður kosninganna voru sem hér segir:

B-listi Framsóknar og félagshyggjufólks í Dalvíkurbyggð hlaut 454 atkvæði og 3 menn kjörna
D-listi Sjálfstæðisfélags Dalvíkurbyggðar hlaut 256 atkvæði og 2 menn kjörna
J-listi Óháð framboð hlaut 348 atkvæði og 2 menn kjörna