Úrslit frá Ísmóti Hrings

Laugardaginn13.febrúar var haldið Ísmót á Hrisatjörn við Dalvík. Þátttaka var mjög góð, en um 50 skráningar voru í mótið, 41 í Tölt og 10 í Skeið. Aðstæður á tjörninni voru frábærar og veður hagstætt, logn og um frostmark. Keppnin var jöfn og spennandi og réðust úrslit í Tölti í bráðabana. Mótið var styrkt af Lífland og Húsasmiðjunni, en fyrirtækin gáfu nytjaverðlaun fyrir 5 efstu sætin í Líflandstölti og 3 efstu sætin í Húsasmiðjuskeiði. Myndir og videoklippur af mótinu er að finna á heimasíðu Hrings: www.hringurdalvik.net

Úrslit mótsins urðu eftirfarandi: 


Tölt.
1) Stefán Friðgerisson Saumur frá Syðra-Fjalli 1 - 7.11
2) Þorbjörn Hreinn Matthíasson Ýma frá Akureyri - 7.11
3) Þorvar Þorsteinsson Stáli frá Ytri Bægisá - 6.67
4) Ásdís Helga Sigursteinsdóttir Hrifning frá Kýrholti - 6.28
5) Baldvin Ari Guðlaugsson Sindri frá Vallanesi - 6.22
Dómar úr forkeppni munu verða sett inn fljótlega og verður hægt að sjá þau á heimasíðu félagsins undir flipanum "Mótaskrá og úrslit"
100m fljúgandi skeið. (Handtímataka)
1) Baldvin Ari Guðlaugsson Sindri frá Vallanesi 9.05 sek.
2) Stefán Birgir Stefánsson Blakkur frá Árgerði 9.20 sek.
3) Sveinbjörn Hjörleifsson Drottning frá Dalvík 9.72 sek.