Uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar

Uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar verður haldin í Austur Húnvatnssýslu fimmtudaginn 9. nóvember. Mæting er á Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi klukkan 11:00 og í framhaldinu verður farið í hringferð um nágrennið með ýmsum skemmtilegum uppákomum á leiðinni. Um kvöldið verður svo dagskrá sem kætir bæði líkama og sál. Matur og skemmtun verða í boði gestgjafanna en eins og í fyrra mun hver og einn sjá um gistingu fyrir sig.

Nánari upplýsingar og skráning er á heimasíðu MFN