Uppskeruhátið 3.-8. flokks knattspyrnu hjá UMFS

Uppskeruhátíð 3.-8.flokks knattspyrnu hjá UMFS verður haldið í Íþróttamiðstöðinni Dalvík laugardaginn 17.september kl. 12:00.
Allir iðkendur eiga að mæta í keppnisbúningi sínum vegna myndatöku.
Hvetjum iðkendur til að mæta með fjölskyldum sínum og eiga með okkur góða stund.

Strax að loknu lokahófi fer fram skráning á haustönn í fótbolta. Gjald fyrir haustönn er kr. 7,000 fyrir 7.flokk og eldri, 8.flokkur greiðir 3,000 kr. Systkinaafsláttur er 20% á annað barn og 50% á þriðja barn.

Kl. 14:00 á laugardag er svo síðasti heimaleikur Dalvíkur/Reynis á tímabilinu gegn Fjarðarbyggð. Fjölmennum á pallana og styðjum okkar menn!!

Barna- og unglingaráð UMFS