Upplýsingatorg

Vegna þeirra aðstæðna sem skapast hafa í efnhagslífi þjóðarinnar hefur Dalvíkurbyggð tekið saman samræmdar upplýsingar inn á sérstakt Upplýsingatorg. Markmiðið er að samræma og auðvelda aðgang að þjónustu og ráðgjöf á vegum Dalvíkurbyggðar og fleiri aðila. 

Á Upplýsingatorginu eru teknar saman ýmsar upplýsingar sem gagnast geta þeim sem telja sig þurfa aðstoð. Þar eru hlekkir inn á ýmsar síður á vegum fjölda stofnana í þjóðfélaginu þar sem finna má svör við mörgum þeirra spurninga sem kvikna við þær aðstæður sem nú eru uppi.

Upplýsingatorgið er sýnilegt á forsíðu heimasíðunnar en einnig er hægt að smella hér til að komast inn á það.