Upplýsingar til vegfarenda

Upplýsingar til vegfarenda

Það hefur ekki farið fram hjá neinum sem býr í sveitarfélaginu okkar að mikið hefur snjóað síðustu daga/vikur/mánuði. Þar af leiðandi er snjómagn orðið mikið og eins og staðan er núna þá er mjög víða takmörkuð sýn á gatnamótum og lítil breidd á götum.

Það eru vinsamleg tilmæli til allra að fara ekki um á vanbúnum bílum, og gæta þess að börn séu ekki að leik í snjóruðningum eða sköflum þar sem búast má við að stórvirk snjómoksturtæki eigi eftir að fara um.

Við biðjum því vegfarendur að fara varlega en unnið verður í snjómokstri næstu daga.