Upplýsingamiðstöð Dalvíkurbyggðar opnar formlega í dag

Upplýsingamiðstöð Dalvíkurbyggðar opnar formlega í dag

Upplýsingamiðstöð Dalvíkurbyggðar opnar formlega í dag, miðvikudaginn 4. júní n.k., og verður opin til og með 28. ágúst n.k.

Upplýsingamiðstöðin er í Bergi menningarhúsi og er opin alla virka daga frá kl. 09:00 – kl. 18:00 í samstarfi við Bókasafn Dalvíkurbyggðar og á laugardögum frá kl. 13:00-17:00.

Starfsmaður Upplýsingamiðstöðvar er Valgerður Björg Stefánsdóttir og er viðvera hennar frá kl. 13:00 til kl. 18:00 alla virka daga sem og á laugardögum.

Netfang Upplýsingamiðstöðvar er info@dalvikurbyggd.is og síminn er 846 4908.