Ungmennasamband Eyjafjarðar auglýsir eftir umsóknum í Landsmótssjóð UMSE 2009

Seinni úthlutun þessa árs fer fram 1. nóvember n.k.

Sjóðurinn hefur frá stofnun stutt vel við margvísleg verkefni. Tilgangur sjóðsins er að stuðla að því að starf UMSE geti í framtíðinni orðið enn öflugara. Sjóðurinn styrkir ýmis verkefni í innra starfi UMSE – svo sem:
-Fræðslustarf – m.a. námskeiðshald og fyrirlestra fyrir þjálfara, leiðbeinendur, starfsmenn og/eða dómara, félagsmenn og iðkendur innan UMSE.
-Útbreiðslu- og kynningarstarf í því skyni að gera UMSE sýnilegra og vekja athygli á fjölþættu starfi sambandsins.
-Önnur verkefni sem sjóðsstjórn metur að séu til þess fallin að efla innra starf UMSE.

Umsóknarfrestur er til og með 30. september n.k. Umsóknir berist skirfstofu UMSE Búgarði, Óseyri 2, 603 Akureyri eða í tölvupósti á umse@umse.is .

Nánar um sjóðinn og úthlutunarreglur hans er að finna á heimasíðu UMSE www.umse.is
http://www.umse.is/reglugerdhir/landsmotssjodhur-umse-2009