Undirritun málefna- og samstarfssamnings B-lista og D-lista

Undirritun málefna- og samstarfssamnings B-lista og D-lista

Í gær, fimmtudaginn 31. maí, var undirritaður málefna- og samstarfssamningur B-lista Framsóknar- og félagshyggjufólks og D-lista Sjálfstæðisfélags Dalvíkurbyggðar og óháðra um meirihlutasamstarf í sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar kjörtímabilið 2018-2022.

Tekið er mið af stefnumálum beggja framboðanna í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna 26.maí 2018. 

Lögð er áhersla á ábyrga og nútímalega stjórnunarhætti sem miða að því að laða fram það besta í samfélaginu. Lagt er upp með að allir kjörnir fulltrúar vinni sem ein heild og sjónarmið allra séu virt og skoðuð. Áhersla er á gott samstarf og samráð við starfsfólk sveitarfélagins. Fjölgun íbúa er langtímamarkmið, að laða að nýtt fólk og halda í þann mannauð sem fyrir er. Umhverfismál og málefni Dalbæjar og eldri borgara verða áherslupunktar á kjörtímabilinu.

Forseti sveitarstjórnar verður Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson D-lista
Formaður byggðarráðs verður Jón Ingi Sveinsson B-lista
Katrín Sigurjónsdóttir oddviti B-lista verður sveitarstjóri

Oddvitar listanna þau Katrín Sigurjónsdóttir og Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson undirrituðu samstarfssamninginn við Dalbæ, heimili aldraðra í dag kl. 17 í sól og blíðu að viðstöddum íbúum og starfsfólki Dalbæjar. Málefnasamningurinn verður birtur eftir fyrsta fund sveitarstjórnar Dalvíkurbyggðar sem er áætlaður þann 11. júní nk.