Undakeppni í Íslandsdmótinu í futsal fótbolta

Á morgun, laugardaginn 21.janúar, verður undankeppni í Íslandsmótinu í futsal fótbolta 4.flokki hérna á Dalvík. Keppt er í Íþróttamiðstöðinni og hefst keppni um kl.11:00 en áætlað er að síðustu leikjum ljúki fyrir kl.15:00. Dalvík sendir lið til keppni bæði í karla- og kvennaflokki. Von er á góðum gestum til okkar úr nágrannabyggðarlögunum hérna fyrir norðan, alls um 100 manns. Íbúar Dalvíkurbyggðar eru hvattir til að mæta í Íþróttamiðstöðina og hvetja krakkana til dáða.