Umsóknir um mataraðstoð fyrir jólin 2015

Félagsþjónusta Dalvíkurbyggðar er í samstarfi við Mæðrastyrksnefnd Akureyrar, Hjálparstarf kirkjunnar, Hjálpræðisherinn á Akureyri og Rauða krossinn við Eyjafjörð varðandi umsóknir um mataraðstoð.

Umsóknir er hægt að nálgast á skrifstofu félagsþjónustu Dalvíkurbyggðar eða í þjónustuveri. Skilafrestur á umsóknum fyrir mataraðstoð er fimmtudaginn 10.desember.


Mikilvægt er að umsóknunum fylgi staðgreiðsluyfirlit sem nálgast má inn á www.skattur.is , með því að fara vinstra megin á síðunni í Staðgreiðsluskrá RSK og velja árið. Þetta blað er líka hægt að nálgast hjá Ríkisskattstjóra. Starfsmenn félagsþjónustu Dalvíkurbyggðar geta einnig aðstoðað einstaklinga til að nálgast blaðið með því að viðkomandi komi með veflykilinn sinn af síðu Skattsins.


Ef umsóknunum fylgir ekki staðgreiðsluyfirlit telst umsóknin ógild.


Úthlutun mataraðstoðar mun eiga sér stað 16. og 17.desember

Frekari upplýsingar veita starfsmenn félagsþjónustu Dalvíkurbyggðar í síma 460 4900.