Umsóknir um jólaaðstoð á Eyjafjarðarsvæðinu 2022

Umsóknir um jólaaðstoð á Eyjafjarðarsvæðinu 2022

Félagsþjónusta Dalvíkurbyggðar er í samstarfi við Velferðarsjóð á Eyjafjarðarsvæðinu varðandi umsóknir um jólaaðstoð 2022. Um er að ræða kort sem nota má í verslunum Bónus eða Samkaupa til matarkaupa. Hægt er að sækja um jólaaðstoð inn á vefsíðunni velferdey.is eða á íbúagátt Dalvíkurbyggðar. Einnig er hægt að nálgast umsóknareyðublöð á skrifstofu Dalvíkurbyggðar eða hjá starfsmönnum félagsþjónustu Dalvíkurbyggðar í síma 460-4900.

Umsóknir þurfað berast til félagsþjónustu í síðasta lagi föstudaginn 2. desember

Mikilvægt er að umsókninni fylgi staðgreiðsluyfirlit umsækjanda og maka/sambýlings sem nálgast má inn á www.skattur.is, með íslykli eða rafrænum skilríkjum og velja í efstu línu almennt, fara í yfirlit og velja þar staðgreiðsluskrá RSK og passa að árið 2022 sé valið.. Þetta blað er líka hægt að nálgast hjá Ríkisskattstjóra. Starfsmenn félagsþjónustu Dalvíkurbyggðar geta einnig aðstoðað einstaklinga við að nálgast staðgreiðsluyfirlitið með því að viðkomandi komi með rafræn skilríki. 

Ef umsókninni fylgir ekki staðgreiðsluyfirlit telst umsóknin ógild.

Úthlutun jólaaðstoðar mun eiga sér stað eins fljótt og auðið er.