Umsóknir um jólaaðstoð á Eyjafjarðarsvæðinu 2019

Umsóknir um jólaaðstoð á Eyjafjarðarsvæðinu 2019

Félagsþjónusta Dalvíkurbyggðar er í samstarfi við Mæðrastyrksnefnd Akureyrar, Hjálparstarf kirkjunnar, Hjálpræðisherinn á Akureyri og Rauða krossinn við Eyjafjörð varðandi umsóknir um jólaaðstoð á Eyjafjarðarsvæðinu. Um er að ræða kort sem nota má í verslunum til matarkaupa fyrir þá sem eiga lítið handa á milli. Umsóknir er hægt að nálgast á skrifstofu Dalvíkurbyggðar eða hjá stafsmönnum félagsþjónustu Dalvíkurbyggðar.

Skilafrestur á umsóknum fyrir jólaaðstoð er föstudaginn 6.desember 2019, eftir þann tíma er búið að loka fyrir umsóknir um jólaaðstoð.

Mikilvægt er að umsókninni fylgi staðgreiðsluyfirlit umsækjanda og maka/sambýlings sem nálgast má inn á www.skattur.is, með því að fara vinstra megin á síðunni í Staðgreiðsluskrá RSK og velja árið 2019. Þetta blað er líka hægt að nálgast hjá Ríkisskattstjóra. Starfsmenn félagsþjónustu Dalvíkurbyggðar geta einnig aðstoðað einstaklinga til að nálgast staðgreiðsluyfirlitið með því að viðkomandi komi með veflykilinn sinn af síðu Skattsins.

Ef umsókninni fylgir ekki staðgreiðsluyfirlit telst umsóknin ógild.

Úthlutun jólaaðstoðar mun eiga sér stað miðvikudaginn 11. desember og fimmtudaginn 12. desember 2019.

Frekari upplýsingar veita starfsmenn félagsþjónustu Dalvíkurbyggðar í síma 460 4900.