Umsókn um jólaaðstoð fyrir jólin 2014

Þeir íbúar Dalvíkurbyggðar sem þurfa á jólaaðstoð að halda eru vinsamlegast beðnir um að senda inn umsókn til Félagsþjónustu Dalvíkurbyggðar fyrir miðvikudaginn 10. desember 2014. Umsóknarblöðin er hægt að nálgast hjá félagsþjónustunni og hér fyrir neðan.

Félagsþjónusta Dalvíkurbyggðar er einnig í samstarfi við Mæðrastyrksnefnd Akureyrar, Hjálparstarf kirkjunnar, Hjálpræðishersins á Akureyri og Rauða krossins við Eyjafjörð varðandi umsóknir um mataraðstoð. Eyðublöðin er hægt að nálgast hjá félagsþjónustunni og hér fyrir neðan. Skilafrestur á mataraðstoð er föstudaginn 12. desember.

Mikilvægt er að umsóknunum fylgi staðgreiðsluyfirlit sem nálgast má inná www.skattur.is  með því að fara vinstra megin á síðunni í Staðgreiðsluskrá RSK og velja árið. Það er líka hægt að sækja þetta blað til Ríkisskattstjóra. Starfsmenn félagsþjónustu geta einnig aðstoða einstaklinga til að nálgast blaðið með því að viðkomandi komi með veflykilinn sinn að síðu Skattsins.

Ef umsóknunum fylgir ekki staðgreiðsluyfirlit telst umsóknin ógild.

Síðasti skiladagur umsókna er sem hér segir :

Fjárhagsaðstoð:
Fjárhagsaðstoð fyrir 10.desember 2014
Úthlutun fjárhagsaðstoðar mun síðan eiga sér stað 12.desember.


Mataraðstoð:
Mataraðstoð fyrir 12.desember 2014
Úthlutun mataraðstoðar mun eiga sér stað 16 og 17.desember


Umsóknareyðublað um jólaaðstoð fyrir jólin 2014

Umsóknareyðublað um mataraðstoð