Umsókn um húsaleigubætur 2014

Leigjendur íbúðahúsnæðis eru minntir á að frestur til að sækja um húsaleigubætur fyrir janúar 2014 er til 16. janúar.
Umsóknum skal fylgja þinglýstur húsaleigusamningur, afrit af síðustu skattaskýrslu og launaseðlar síðustu þriggja mánaða. Ennfremur þurfa nemar að skila vottorði fyrir skólavist á vorönn.
Umsókn um húsaleigubætur er að finna á www.dalvikurbyggd.is  á íbúagáttinni „Mín Dalvíkurbyggð“ og er þar hægt að skila öllum gögnum rafrænt nema húsaleigusamningi sem skal afhendast í frumriti.