Umsækjendur um stöðu skólastjóra Dalvíkurskóla vegna námsleyfis

Þann 28. febrúar síðastliðinn rann út umsóknarfrestur um stöðu skólastjóra Dalvíkurskóla vegna námsleyfis. Alls sóttu sex um stöðuna en tveir umsækjendur drógu umsóknir sínar til baka.

Umsækjendur eru:

Björn Gunnlaugsson
Íris Reynisdóttir
Jón Bjarnason
Vera Valgarðsdóttur