Umsækjendur um starf slökkviliðsstjóra

Þann 31. júlí síðastliðinn rann út umsóknarfrestur um starf slökkviliðsstjóra slökkviliðs Dalvíkurbyggðar, en það var umhverfis- og tæknisvið sem auglýsti stöðuna. Alls bárust fimm umsóknir.

Eftirtaldir sóttu um:  
Anton Hallgrímsson
Heimir Gunnarsson
Júlíus Baldursson
Martha Óskarsdóttir
Sigursteinn Freyr Sigfússon