Umsækjendur um starf skólastjóra nýs sameinaðs grunnskóla í Dalvíkurbyggð

Umsóknarfrestur um starf skólastjóra nýs sameinaðs grunnskóla í Dalvíkurbyggð rann út 12. mars sl. og bárust þrjár umsóknir um stöðuna. Umsækjendur eru :

  • Anna Baldvina Jóhannesdóttir, Dalvíkurbyggð 
  • Bjarni Jóhann Valdimarsson, Dalvíkurbyggð
  • Kristján Arnar Ingason, Reykjavík 

IMG Mannafl-Liðsauki á Akureyri sem falið var að auglýsa stöðuna mun vinna úr umsóknum og leggja niðurstöður fyrir fræðsluráð sem umsagnaraðila.

Nánar verður sagt frá ráðningu nýs skólastjóra þegar gengið hefur verið frá ráðningu.