Umferðaröryggisáætlun -Viltu hafa áhrif á umferðaröryggi í sveitarfélaginu?

Sveitarstjórn hefur sett af stað vinnu við gerð umferðaröryggisáætlunar fyrir Dalvíkurbyggð. Til að kynna verkefnið og fá sem gleggsta mynd af stöðu mála er leitað til íbúa sveitarfélagsins.

Haldinn verður íbúafundur um umferðaröryggi í Dalvíkurbyggð í Bergi fimmtudaginn 15. október kl. 17:00.

Hvetjum sem flesta til að mæta, láta sína skoðun í ljós og hafa þannig áhrif á umferðaröryggi í sveitarfélaginu.

Verkefnisstjórn