Tvær deildarstjórastöður á Krílakoti lausar til umsóknar

Við leikskólann Krílakot í Dalvíkurbyggð eru lausar tvær 100% stöður deildarstjóra. 

Hæfniskröfur:

  • Leikskólakennaramenntun eða önnur uppeldismenntun.
  • Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Reynsla af leikskólakennslu og deildarstjórn er kostur

Ráðið verður í stöðurnar frá og með 10. ágúst nk. Umsóknarfrestur er til og með 30 júní nk.

Upplýsingar veitir skólastjóri, Dagbjört Ásgeirsdóttir, í síma 466-1372 og krilakot@dalvik.is

Krílakot er þriggja deilda leikskóli með nemendur frá 9 mánaða aldri til 5 ára.

Í starfinu er áhersla lögð á fjölbreytt skapandi starf og nám í gegnum leik.