Trúðarnir í veisluþjónustunni

Trúðarnir í veisluþjónustunni

Það var aldeilis kátt í koti þegar Gústi kokkur kom með matinn til okkar í dag, því í þetta sinn kom hann klæddur sem trúður og var með 2 aðstoðar trúða með sér. Trúðarnir gáfu krökkunum ís í forrét og vakti það auðvitað mikla lukku :) 

Við sendum veisluþjónustunni kærar þakkir fyrir samstarfið í vetur og við sjáumst hress að 4 viknum liðnum.