Tréverk, Salka-Fiskmiðlun og Promens Dalvík framúrskarandi fyrirtæki 2012

Tréverk, Salka-Fiskmiðlun og Promens Dalvík framúrskarandi fyrirtæki 2012

Tréverk ehf., Salka-Fiskmiðlun ehf. og Promens Dalvík ehf. eru á lista Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki 2012. Þar skipa þau sér í hóp 358 íslenskra fyrirtækja sem verðskulda þessa viðurkenningu en alls eru 32.000 fyrirtæki skráð í hlutafélagaskrá. Það eru því aðeins 1% þeirra fyrirtækja sem komast á lista Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki 2012.

Á heimasíðu Creditinfo kemur fram að unnin hefur verið ítarlega greiningu sem sýnir hvaða íslensk fyrirtæki fengu bestu einkun í styrk- og stöðugleikamati félagsins m.v. ýmsar lykiltölur og breytur. Að mati Creditinfo er mikilvægara á litlum markaði að draga fram styrkleika fyrirtækja sem birtist í stöðugleika í rekstri fremur en niðurstöðum einstakra rekstrarára. Slíkar kröfur eru líklegri til að undanskilja sveiflukenndan árangur stærri eignarhalds- og móðurfélaga en undirstrika frekar styrkleika fyrirtækja í virkri starfsemi sem standast ýmsar efnahagssveiflur.

Eftirfarandi upplýsingar eru lagðar til grundvallar á mati Creditinfo um hvort fyrirtæki uppfylli skilyrði styrkleikamatsins:

  • að hafa skilað ársreikningum til RSK 2009 til 2011
  • minna en 0,5% líkur á alvarlegum vanskilum
  • að sýna jákvæðan rekstrarhagnað (EBIT) þrjú ár í röð
  • að ársniðurstaða sé jákvæð þrjú ár í röð
  • eignir séu 80 milljónir eða meira árin 2009 - 2011
  • að eigið fé sé 20% eða meira, rekstrarárin 2009 til 2011
  • að vera með skráðan framkvæmdastjóra í hlutafélagaskrá
  • að vera virkt fyrirtæki skv. skilgreiningu Creditinfo