Tré og runnar við götur og gangstéttar -Er ekki kominn tími til að klippa?

Tré og runnar við götur og gangstéttar -Er ekki kominn tími til að klippa?

Öll viljum við geta komist auðveldlega um gangstéttar og göngustíga bæjarins.


Sumstaðar vex trjágróður á lóðum það mikið út fyrir lóðarmörk að götum, gangstéttum og stígum að vandræði og jafnvel hætta stafar af. Þetta á bæði við um umferð gangandi, hjólandi og akandi vegfarenda. Einnig eru dæmi um að trjágróður skyggi á umferðarmerki, götuheiti og jafnvel lýsingu.


Lóðarhafa er skylt að halda vexti trjáa og runna á lóð innan lóðarmarka og er bæjaryfirvöldum heimilt að fjarlægja þann gróður sem vex út fyrir lóðarmörk og er til vandræða, á kostnað lóðarhafa.


Íbúar Dalvíkurbyggðar eru hvattir til að hafa þessi mál í lagi og snyrta trjágróður á lóðarmörkum eftir því sem þörf er á.


Umhverfisstjóri Dalvíkurbyggðar

Hér má sjá hvernig samspil gróðurs í görðum og umferðar á að vera.


Vaxi gróður út fyrir lóðarmörk þarf að vera 2,8 metra lágmarkshæð undir hann frá gangstétt eða gangstíg. Lágmarkshæð yfir akbraut þarf að vera 4,2 metrar.