Tónlistarskólinn með opið hús í samstarfi við Þulu

Tónlistarskóli Dalvíkurbyggðar verður með opið hús í samstarfi með veitingastaðnum Þulu í Menningarhúsinu Bergi. Opni dagurinn verður þriðjudaginn 11. febrúar og verður Þula opið frá kl. 15.00 – 17.00, fram koma nemendur og kennarar Tónlistarskóla Dalvíkurbyggðar.

Boðið verður upp á skemmtilega dagskrá, fjöldasöng og fjölbreytt tónlistaratriði og á Þulu verður hægt að kaupa kökur og kakó gegn vægu gjaldi.

Án efa verður engin svikin af því að kíkja á okkur, hlusta á góða tónlist, borða góðar kökur og renna því niður með heitu kakói.