Tónlist ársins á Grímunni

Tónlist ársins á Grímunni

Árleg uppskeruhátíð sviðslistanna á Íslandi, Gríman, fór fram í Þjóðleikhúsinu í síðustu viku. Þar hlutu þeir Eiríkur Stephensen og Hjörleifur Hjartarson grímuverðlaunin í flokknum „tónlist ársins“, sem veitt er höfundi tónlistar fyrir frumflutta tónlist. Grímuna hlutu þeir Hjörleifur og Eiríkur fyrir tónlistina í Íslandsklukkunni sem sýnd hefur verið við miklar vinsældir í Þjóðleikhúsinu að undanförnu.