Tónleikar og skólaslit hjá Tónlistarskólanum

Framundan hjá Tónlistarskólanum eru tvennir tónleikar og skólaslit þar sem nær allir nemendur skólans koma fram. Tónleikarnir verða í Dalvíkurkirkju laugardaginn 19. maí kl. 14.00 og kl. 16.00. Skólaslit verða síðan í kirkjunni þriðjudaginn 29. maí kl. 17.00 og lýkur þar með vetrarstarfinu.
Innritun nemenda fyrir næsta skólaár stendur nú yfir og forgang hafa þeir sem stundað hafa nám í skólanum í vetur. Byrjað verður að innrita nýja nemendur í næstu viku þ.e.a.s. frá og með 21. maí og fram að skólaslitum.