Tónleikadagur í Tónlistarskólanum

Í dag verður sannkallaður tónleikadagur í tónlistarskólanum.  Dagurinn hefst í Árskógarskóla með tónfundi klukkan 10.00.  Að loknum skóladegi í Dalvíkurskóla verða tónfundir í tónlistarskólanum hjá öllum kennurunum.  Deginum lýkur svo með tónleikum í kirkjunni og hefjast þeir klukkan 16.30. 

Allir sem vettlingi geta valdið eru hvattir til að kíkja við á tónleikana í kirkjunni og sjá það skemmtilega starf sem fram fer í Tónlistarskólanum.